Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Byrjendaáfangi í þýsku
Áfanginn er byrjendaáfangi og flokkast undir A1 skv. evrópska tungumálarammanum. Lögð er áhersla á 4 færniþætti tungumálakennslu: hlustun, lestur, tal og ritun. Markmiðið er að nemandi skilji algeng orð og setningar um sig og fjölskyldu sína ásamt nánasta umhverfi. Einnig…
Í lok áfangans er skriflegt próf úr efni áfangans sem gildir á móti vinnu og ástundun nemandans á önninni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Almennum orðaforða í samræmi við hæfniviðmið áfangans.
Nokkrum grundvallarþáttum málkerfisins.
Menningu, helstu samskiptavenjum og siðum í þýskumælandi löndum.
Uppbyggingu einfaldra texta.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt.
Lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða.
Taka þátt í einföldum samræðum.
Skrifa einfaldan texta um þekkt efni eða áhugasvið.
Beita helstu reglum um málnotkun í ræðu og riti.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli.
Skilja meginatriði einfaldra texta.
Tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt um efni sem hann þekkir.
Taka þátt í samræðum við einfaldar aðstæður.
Meta eigið vinnuframlag og stöðu.
Nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi.