Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Þýska C
Áfanginn er framhaldsáfangi og flokkast undir A2 skv. evrópska tungumálarammanum. Lögð er áhersla á 4 færniþætti tungumálakennslu: hlustun, lestur, tal og ritun. Nemandi er farinn að lesa og skilja lengri samhangandi texta og samtöl. Nemandi getur tekið þátt í almennum…
Nota skal fjölbreytt námsmat sem endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópsku tungumálamöppuna. Í lok áfangans er skriflegt próf úr efni áfangans sem gildir á móti vinnu og ástundun nemandans á önninni.
ÞÝSK1ÞB05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans.
Helstu grundvallarþáttum í uppbyggingu þýska málkerfisins.
Mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem þýska er töluð sem móðurmál og helstu samskiptavenjum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skilja talað mál um kunnugleg efni, fylgja almennum munnlegum fyrirmælum og greina aðalatriði þegar fjallað er um afmörkuð efni.
Lesa margskonar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni.
Taka þátt í og tjá sig í samræðum um fyrirfram ákveðið efni sem hann hefur þekkingu og áhuga á.
Skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir.
Nota upplýsingatækni og hjálpargögn.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Fjalla á tiltölulega einfaldan hátt, munnlega og skriflega um efni sem hann þekkir.
Tjá sig á einfaldan hátt við ýmsar aðstæður í almennum samskiptum.
Tileinka sér aðalatriðin í frásögnum í fjöl- og myndmiðlum.
Fjalla um atburði, ímyndaða og raunverulega.
Geta metið eigið vinnuframlag og stöðu.