Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Upplýsingatækni og tölvunotkun
Í áfanganum kynnast nemendur og læra að nota fjölbreyttan hugbúnað sem tæki til samskipta og vinnu með upplýsingar og gögn á margvíslegu formi við lausn og framsetningu viðfangsefna í námi sínu. Lögð er áhersla á frumkvæði, ábyrgð og færni í…
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Helstu póst- og samskiptanetum.
Flóknum aðgerðum í helstu forritum til framsetningar og miðlunar á texta.
Umhverfi og möguleikum töflureiknis og meðferð tölulegra gagna.
Höfundarétti og notkun heimilda.
Siðfræði og siðferði Netsins (upplýsinga- og tölvusiðfræði).
Upplýsinga- og menningarlæsi og mikilvægi þess (þróað læsi).
Skjalastjórnun og örugg meðferð gagna í skýjaumhverfi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nota markvisst póst- og samskiptanet.
Móta og setja fram texta á ýmsan máta og átta sig á læsileika hans.
Fara með töluleg gögn og framsetningu á þeim.
Framkvæma flóknari aðgerðir í helstu forritum skrifstofuhugbúnaðar svo sem ritvinnslu og töflureikni.
Fara með heimildir og framsetningu þeirra.
Að geyma og vinna með gögn í skýjaumhverfi.
Nýta netsamskipti á öruggan hátt.
Nota sjálfstæð vinnubrögð.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Meta, varðveita, skapa og miðla upplýsingum og þekkingu á skipulagðan og skilvirkan hátt (upplýsingalæsi).
Vinna að mótun texta á ýmsan máta og stuðla að læsileika hans.
Hanna og búa til kynningar og setja fram á skýran hátt.
Vinna með heimildir eftir viðteknum venjum þar að lútandi og virða höfundarétt í vinnu með gögn af ýmsum toga.
Setja upp heimildaritgerð ásamt yfirlitum af ýmsu tagi, s.s. efnis-, mynda- og töfluyfirlit.
Vinna með töluleg gögn, móta þau og setja fram á myndrænan hátt.
Nýta möguleika töflureiknis til útreikninga á flókinn máta.
Stunda örugg netsamskipti og sýna þar gott siðferði.
Vinna sjálfstætt að verkefnum.
Átta sig á mikilvægi menninarlæsis í tengslum við alþjóðasamskipti (menningarlæsi).