UMHV2SB03
Umhverfisfræði og sjálfbærni
- Einingar3
Í þessum áfanga er gerð grein fyrir helstu viðfangsefnum sjálfbærni og sjálfbærri þróun. Áfanginn er kenndur í fjarnámi. Náminu er skipt í lotur og kennsla fer fram með glærum, skilaverkefnum og gagnvirkum könnunum. Nemendur fá nákvæmar upplýsingar um kennslugögn og…
Í þessum áfanga er gerð grein fyrir helstu viðfangsefnum sjálfbærni og sjálfbærri þróun. Áfanginn er kenndur í fjarnámi. Náminu er skipt í lotur og kennsla fer fram með glærum, skilaverkefnum og gagnvirkum könnunum. Nemendur fá nákvæmar upplýsingar um kennslugögn og tilhögun námsins í námsáætlun sem fylgir áfanganum í fjarnámskerfinu. Einnig hafa nemendur þar greiðan aðgang að kennara áfangans sem leiðbeinir nemendum þegar þörf krefur.
UMHV1UM02.
Heimsmarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna sem fjalla um sjálfbæra þróun og sjálfbærni.
Hugtökunum sjálfbærri þróun og sjálfbærni og hvað þau merkja í alþjóðlegu samhengi.
Hvað sjálfbær nýting auðlinda merkir.
Núverandi stöðu Jarðarinnar og Jarðabúa hvað varðar sjálfbærni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Fjalla um álitamál sem varða sjálfbærni í víðum skilningi.
Tengja saman siðferðisvitund og vitund um orsakir og afleiðingar af gerðum mannsins sem tengjast sjálfbærni.
Tengja saman ólíkar fræðigreinar hvað varðar sjálfbærni samfélaga.
Öflun frekari upplýsinga á sjálfstæðan hátt um sjálfbærni og sjálfbæra þróun.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Tengja undirstöðuþekkingu í sjálfbærni við daglegt líf.
Taka ábyrgð á eigin lífi með hliðsjón af sjálfbærni samfélaga.
Skilja samhengi nýtingar auðlinda og áhrifa hennar á lífríki og landslag og þáttar mannsins í þróun umhverfisins.
Geta greint nauðsynlegar upplýsingar um sjálfbærni og sjálfbæra þróun og geta hagnýtt sér og miðlað þeim upplýsingum í töluðu eða rituðu máli.
Öðlast heildstæða mynd af vanda sem ógnar framtíð Jarðar og mikilvægi alþjóðahyggju í hvað varðar málefni sem tengjast sjálfbærni.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: