Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Blindskrift, fingrasetning, hnappaborð, vélritun
Áfanginn er ætlaður byrjendum í vélritun og inniheldur hann fjórar lotur, eða 22 verkefni. Nemendur taka stöðupróf í byrjun áfangans og geta lokið áfanganum ef þeir ná viðunandi einkunn. Í áfanganum er farið í hnappaborðið, byrjað er á léttum fingraæfingum…
Námsmat í áfanganum tekur mið af ástundun nemenda yfir önnina, verkefnavinnu og skilum, æfingum og verklegu prófi í lokin.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Staðsetningu heimalykla á hnappaborðinu.
Staðsetningu lykla á hnappaborði út frá heimalyklunum.
Réttri fingrasetningu.
Réttum vinnustellingum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nota rétta fingrasetningu og blindskrift.
Að beita líkamanum rétt við innslátt.
Vélrita á ákveðnum hraða við innslátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Vélrita með jöfnum áslætti.
Nýta rétta fingrasetningu og blindskrift.
Ná góðum hraða í innslætti.
Beita líkamsstöðu við hæfi.