FJMÁ2TP05
Fjármálafræði, tímagildi peninga
Forkröfur: REKH 2MT 05, STÆR 2LT 05 og TÖLV 2RT 05 eða sambærilegir áfangar. Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.
Áfanginn er í fjarnámi og kennslan fer því fram á netinu. Námið byggir mest á sjálfsnámi. Það er mikil áhersla á dæmaútreikninga í þessum áfanga.
Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
- Mismunandi sparnarleiðum einstaklinga.
- Tímagildi fjármagns og grundvallar þýðingu þess í fjármálum.
- Vísitölum, hlutverki þeirra og notkun.
- Ávöxtunarkröfu og fjármagnskostnaði sem og áhrifaþætti þessara fjármálahugtaka.
- Helstu markaðsverðbréfum á íslenskum verðbréfamarkaði og hlutverk kauphalla í verðbréfaviðskiptum.
- Þekki til helstu tegunda skuldabréfa.
- Mikilvægi fjárfestinga í þjóðfélaginu og hvernig á að meta hagkvæmni þeirra.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Hagnýta sér netið til öflunar og túlkunar fjármálalegra upplýsinga.
- Fylgjast með verðbréfamarkaðnum og geti gert sér grein fyrir og metið hvers vegna sveiflur verða á honum og lagt mat á áhrif þeirra.
- Fylgjast með umræðunni um fjárfestingar og þýðingu þeirra fyrir hagkerfið.
- Skilja og meta hvað liggur að baki arðsemismati tiltekinnar fjárfestingar.
- Túlka og greina rekstrarhorfur fyrirtækja út frá ársreikningum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í:
- Að reikna arðsemi mismunandi fjárfestingavalkosta.
- Að reikna markaðsverðmæti/gengi mismunandi tegunda skuldabréfa út frá ákvöxtunarkröfu markaðarins.
- Að reikna virði hlutabréfa út frá arðgreiðslu- og sjóðsstreymisaðferð.
- Vísitöluútreikningum og túlkun þeirra.
- Að reikna út helstu kennitölur sem notaðar eru við mat á hlutabréfum og hlutafélögum.
- Að fást við einfalda útreikninga tengda áhrifum fjármögnunar á virði hlutafélaga.
- Lokapróf 85%.
- Próf í kennslukerfinu 15%.
- Ná þarf 4,5 í lokaprófinu til að próf í kennslukerfinu, Moodle, reiknist inn í lokaeinkunn.
- Dæmahefti í fjármálum, útgefið 2021. Nánar í kennslukerfinu.
- Farsæl skref í fjármálum, útgáfa 2020, eftir Gunnar Baldvinsson. Nánar í kennslukerfinu, þarf ekki að kaupa.
- Efni frá kennara í kennslukerfinu, glósur, dæmaútreikningur o.s.frv.
- Ítarefni: Viðurkenndar kennslubækur í fjármálum t.d.: Brigham, F. Eugene: Fundamentals of Financial Management.