FRAN1FC05

Franska C

Áfanginn er framhald af FRAN 1FB 05 (eða sambærilegum áfanga). Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.

Á þessari önn er haldið áfram að byggja ofaná það sem gert var á fyrstu önn. Haldið er áfram að kenna nemendum undirstöðuatriði tungumálsins, grunnorðaforða þess og framburð.  Haldið er áfram að æfa tal, hlustun, ritun og lestur.  Framburðaræfingar verða studdar hlustun.  Farið er í helstu málfræðiatriði og gerðar æfingar.  Áhersla er lögð á að nemendur geti skilið talað mál og svarað sjálfir einföldum spurningum.  Unnið er með einfalda texta af mismunandi gerð, svo sem samtöl, stutta texta og ljóð.  Gerð eru verkefni úr vinnubók en einnig er farið í ýmis verkefni.  Nemendur eru látnir tala og skrifa um sjálfa sig, fjölskyldu sína, vini, áhugamál og nánasta umhverfi sitt. Nemendur eru látnir nota Netið við upplýsingaleit.  Nemendum er vísað á orðabók.

Að nemendur:

  • Nái nokkru öryggi í frönskum framburði.
  • Geti skilið einföld fyrirmæli á frönsku og geti náð ákveðnum upplýsingum í töluðu máli sem tengist viðfangsefni áfangans.
  • Geti lesið einfalda texta, sem miðast við orðaforðann í áfanganum, og áttað sig á meginefni lengri texta á léttu máli þótt þeir skilji ekki hvert orð.
  • Geti óhræddir skipst á upplýsingum við frönskumælandi fólk um sig og hagi sína með einföldum spurningum og svörum.
  • Geti notað einfaldar setningar til að skrifa kynningar, stuttar lýsingar, stutt bréf og skilaboð.
  • Þjálfist í réttritun.
  • Fræðist um Frakkland, uppruna og útbreiðslu franskrar tungu, kynnist daglegu lífi frönskumælandi þjóða og vakni til vitundar um mismunandi menningarheima.

  • Símat.

  • Alter ego + A1 (lesbókin), eftir Annie Berthe, Corina Brillant og fleiri. Útgefandi Hachette.
  • Hljóð- og myndbönd.
  • Netið.
  • Orðabækur.