Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Íslenska, goðafræði og fornbókmenntir
Áfanginn er framhald af ÍSLE 2RM 06 (eða sambærilegum áfanga). Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.
Nýjar íslenskar smásögur eru lesnar með það að markmiði að auka orðaforða nemenda og færni þeirra í að skilja fólk og samfélag. Sögurnar varpa allar ljósi á aðstæður eða samskipti sem koma upp í daglegu lífi. Með skriflegum verkefnum gefst nemendum kostur á að túlka viðbrögð persóna og setja sig í spor þeirra og öðlast þannig reynslu og skilning sem nýtist þeim sjálfum í lífinu.
Nemendur lesa norræna goðafræði og kynnast hugmyndaheimi norrænna manna til forna. Lögð er áhersla á skilning nemenda og að þeir átti sig á stöðu Snorra-Eddu meðal fornbókmennta. Gagnvirk verkefni verða unnin á kennsluvef og dýpri spurningum svarað skriflega.
Nemendur kynnast fornum kveðskap og vinna verkefni sem miða að því að auka skilning þeirra á fornu máli og samfélagi. Auk þess miða verkefnin að því að nemendur setji miðaldabókmenntir í samhengi við sinn eigin samtíma og meti merkingu hans fyrir nútímann.