Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Íslenska, ritun, málnotkun og tjáning
Grunnáfangi. Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.
Í áfanganum er mikil áhersla lögð á lestur og tjáningu í ræðu og riti. Nemendur lesa tvær skáldsögur á önninni. Fjallað verður um sögu máls og menningar frá frumnorrænum tíma til okkar daga. Farið verður yfir sögu íslensks máls og skyldleika við önnur tungumál og helstu hljóð- og málbreytingar íslenskunnar skoðaðar. Kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðum auk verkefnavinnu og ritunarverkefna. Nemendur eru þjálfaðir í setningafræði þar sem þeir greina og glöggva sig á skiptingu texta í aðal- og aukasetningar sem og setningarhluta. Kennd er meðferð og skráning heimilda, frágangur ritaðs máls og notkun hjálpargagna svo sem handbóka og orðabóka. Mikil áhersla er lögð á tölvunotkun í vinnslu og skilum verkefna.