LÖGF3LR05
Lögfræði, lögskipan og réttarreglur
Grunnáfangi. Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.
Inngangur um helstu grunnatriði lögfræðinnar, fræðikerfi hennar, réttarheimildir o.fl. Umfjöllun um stjórnskipun og stjórnarfar og meðferð mála hjá stjórnsýsluaðilum.
- Réttarfar. Dómstólaskipanin á Íslandi. Meðferð einkamáls útskýrð og grunnreglur einkamálaréttarfarsins. Farið er í mun á opinberum málum og einkamálum, sönnun rædd. Farið er yfir helstu atriði aðfarargerða, nauðungarsölu og gjaldþrotaskipti. Reglur laga um samningsbundna gerðardóma.
- Samningaréttur. Gerð er grein fyrir reglum um rétthæfi og gerhæfi. Farið er yfir stofnun löggerninga, umboð og milligöngu við samningsgerð. Umfjöllun um ógilda löggerninga.
- Kröfuréttur. Farið er yfir helstu meginreglur kröfuréttarins, þ.e. örlög löggerninga. Sérstök umfjöllun um viðskiptabréfakröfur, veðrétt og reglur um ábyrgð á fjárskuldbindingum 3ja manns.
- Réttarreglur um lausafjárkaup, þjónustukaup og fasteignaviðskipti.
- Umfjöllun um stofnun og slit hjúskapar, óvígða sambúð og staðfesta samvist. Barnaréttur m.a. feðrun barna og móðerni. Erfðir, lögerfðir og bréferfðir.
- Fjármál einstaklinga, rekstur heimilis. Sparnaður og lán. Helstu réttindi og skyldur aðila vinnumarkaðarins.
- Félög og skattar, félagafrelsi, stofnun félags.
Að nemendur öðlist:
- Innsýn í réttarreglurnar og geri sér grein fyrir hvernig þær verka á samskipti manna.
- Almenna fræðslu um íslenska lögskipan.
- Lokapróf 60%.
- Verkefni 40%.
- Til að ná áfanganum, þarf nemandi að ná 4,0 á lokaprófi.
Lögfræði fyrir viðskiptalífið eftir Björn Jón Bragason. Bókin fæst hjá höfundi, sendið pósti til bjorn@verslo.is til að fá hana senda.