MENN3MS05
Menningarfræði, menning og samfélag
Áfanginn er framhald af MENN2EM05 (eða sambærilegum áfanga). Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.
- Trúarbrögð: Hugtök og birtingarmyndir. Fjallað verður um nokkur algeng hugtök sem tengjast trúarbragðafræðum, ekki síst í sögulegu ljósi. Sjónum verður sérstaklega beint að íslam og sambandi trúar og samfélags í Miðausturlöndum.
- Suður-Afríka. Lesin er bók skemmtikraftsins Trevors Noah þar sem hann fjallar um æsku sína í S-Afríku á tíma aðskilnaðarstefnunnar.
- Menningarheimur eða hugmyndakerfi: Valið í samráði við nemendur.
Nemendur
- Auki með sér skilning á fjölbreytileika ólíkra samfélaga.
- Geti gert sér grein fyrir hlutverki menningarlegra og félagslegra þátta í mótun einstaklinga og samfélaga. Í þessu samhengi verður sérstakri athygli beint að trúarbrögðum.
- Auki þekkingu sína á völdum þjóðum utan Evrópu og geri sér grein fyrir helstu þáttum í menningu þeirra.
- Öðlist aukna færni til að afla sér upplýsinga úr ólíkum miðlum, vinna úr þeim og skila til annarra.
- Efli með sér hæfni til sjálfstæðis í hugsun.
- Þjálfist í að meta umhverfi sitt og eigin hugmyndir á uppbyggilegan hátt í krafti þekkingar og skarprar hugsunar.
- Ýmis verkefni 75%.
- Gagnvirkt próf á Moodle 25%.
- Ekkert skriflegt lokapróf er þreytt í áfanganum.
- Bókin Glæpur við fæðingu e. Trevor Noah í þýðingu Helgu Soffíu Einarsdóttur.
- Kvikmyndin Kite Runner (Flugdrekahlauparinn) eftir Khaled Hosseini.
- Heimildamyndin Religilous eftir Bill Maher.
- Bók að eigin vali.
- Annað lesefni er á síðu áfangans.