NÁTT1EJ05
Náttúrufræði, eðlis- og jarðfræði
Grunnáfangi í eðlis- og jarðfræði fyrir allar brautir nema náttúrufræðibraut. Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.
Grunnáfangi í jarðfræði þar sem fram fer kynning á viðfangsefnum jarðfræðinnar. Farið er yfir grunnhugtök í tengslum við jarðfræðileg ferli og áhrif mannsins á þau. Einnig er farið í grunnatriði í eðlisfræði.
Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
- Grunnlögmálum jarðfræðinnar og þeim ferlum sem stýra gangi náttúrunnar.
- Umhverfi sínu og þeim landmótunarferlum sem stjórnast af innrænum og útrænum öflum.
- Hugtökunum sjálfbærni og sjálfbærri þróun í tengslum við nýtingu náttúruauðlinda.
- Lofthjúpnum og loftslagsbreytingum.
- Eðli vatns og hringrás vatns á jörðinni.
- Hreyfingu hluta, stöðuorku og áhrifum þyngdaraflsins.
- Rafsegulbylgjum og rafmagnsfræði.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Setja fram og túlka einfaldar myndir, kort og gröf.
- Nota gögn og heimildir í raunvísindum.
- Tengja við ferli í náttúrunni, hringrásir og lögmál.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Gera sér grein fyrir samhengi í náttúrunni út frá þeim ferlum sem stýra gangi náttúrunnar.
- Skilja mikilvægi þessa að sýna umhverfi sínu og náttúru virðingu.
- Gera sér grein fyrir ógnum í náttúrunni og viðbrögð við þeim.
- Útskýra og ræða um sjálfbærni, sjálfbæra þróun, náttúru, umhverfi, heilbrigði og velferð á lýðræðislegan og fordæmislausan hátt.
- Tengja þætti jarðfræðinnar við daglegt líf, eigið heilbrigði og umhverfi.
- Lesa landfræðilegar upplýsingar úr kortum.
- Lýsa hreyfingu hluta og áhrifum þyngdaraflsins.
- Lýsa notkun rafsegulbylgja.
- Gera sér grein fyrir eðli rafmagns.
Námsmatið samanstendur af kaflaprófum, verkefnum og lokaverkefni.
- Rafræn námsgögn eru í kennslukerfinu.