Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Stærðfræði, heildun, runur og raðir
Áfanginn er framhald af STÆR 3DF 05 (eða sambærilegum áfanga). Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.
Í áfanganum er farið í hvernig stofnföll falla eru fundin. Hvernig hægt er að nota heildun við að finna flatarmál óreglulegra svæða, og rúmmál snúða. Kenndar eru aðferðir við að leysa diffurjöfnur af fyrsta stigi. Runur og raðir eru kenndar og hvernig hægt er að tengja útreikninga þeirra t.d. við vaxtareikning.
Óákveðið flatarmál, heildanleiki, andhverfur hornafalla og diffrun þeirra, yfirsumma, undirsumma, millisumma, ákveðið heildi og flatarmál, heildunaraðferðir, hlutheildun, innsetning, stofnbrotsliðun, rúmmál snúða, diffurjöfnur, mismunarunur og raðir, kvótarunur og raðir.
Að nemendur:
Próf í annarlok er 120 mínútur og gildir 90% og skiladæmi gilda 10%. Á lokaprófi í annarlok verður prófað í fræðilegu efni ásamt dæmareikningi.
Til að standast áfangann þarf að ná a.m.k. 4,5 á lokaprófinu áður en einkunn fyrir skiladæmin eru reiknuð inn í lokaeinkunn. Nemandi þarf að fá a.m.k. 5,0 í lokaeinkunn til að standast áfangann.