Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Stjórnun, hugtök og kenningar
Grunnáfangi. Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.
Farið er yfir grunnhugtök og kenningar í stjórnun. Útskýrt er hvernig þjóðfélagsbreytingar hafa gert það að verkum að menn leggja nú meiri áherslu á stjórnun en áður. Leitast er við að veita nemendum innsýn í störf stjórnenda og kynna þeim ýmis verkefni sem þeir inna af hendi. Farið er í stjórnunarferlið, mismunandi gerðir stjórnskipulaga, setningu markmiða, áætlanagerð og upplýsingastreymi. Áhersla er lögð á að upplýsa nemendur um samspil stjórnunar og samstarfs og mikilvægi þess að starfsmenn séu ánægðir í sínu starfi.
Grunnhlutverk stjórnunar, saga stjórnunar, stjórnun í alþjóðaumhverfi, siðferði í stjórnun, frumkvöðlastarfssemi, starfsmannastjórnun, leiðtogahlutverkið o.fl.
Að nemendur:
Kennsluhættir Kennsla fer fram sem sjálfsnám. Með lestri hvers hluta verða glærur með áherslupunktum ásamt ýmsu viðbótarefni. Athugið að áfanginn er lesfag þannig að mikilvægt er að lesa jafnt og þétt.