ÞJÓÐ2HK05
Þjóðhagfræði, hugtök og kenningar
Lesnir eru 12 kaflar í kennslubókinni. Glærur fyrir hvern kafla má nálgast á kennsluvefnum. Spurningar og verkefni verða einnig aðgengileg í lok hvers kafla.
Nemendur skila inn 2-3 verkefnum yfir önnina og einni ritgerð.
Nemendur öðlist þekkingu í:
- Hugtökum hagfræðinnar og helstu kenningum.
- Íslensku efnahagslífi, viðfangsefnum hagstjórnar og efnahagsstefnu stjórnvalda.
Nemendur öðlist leikni í að:
- Nálgast upplýsingar um íslenskt efnahagslíf og efnahagslíf annarra þjóða.
Nemendur öðlist hæfni í að:
- Túlka umsvif hins opinbera í efnahagslífinu.
- Nota hagfræðileg líkön og tungutak til að útskýra og greina raunveruleg vandamál.
- Tjá sig um efnið, bæði munnlega og skriflega um hagræn málefni og mótað sjálfstæðar skoðanir sem m.a. eru byggðar á þeim fræðilega grunni sem lagður er til í náminu.
- Lokapróf gildir 80%.
- Vinnueinkunn gildir 20%.
- Verkefni 10%.
- Ritgerð 10%.
- Economics eftir Mankiw og Taylor og fæst hjá Bóksölu stúdenta.
- Viðbótarefni frá kennarasem sett verður á netið.