Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Þýska B
Áfanginn er framhald af ÞÝSK 1ÞA 05 (eða sambærilegum áfanga). Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.
Áfanginn er framhaldsáfangi og flokkast undir A1 skv. evrópska tungumálarammanum.
Lögð er aðallega áhersla á 3 af 4 færniþáttum tungumálakennslu: hlustun, lestur og ritun. Talþátturinn er nokkuð settur í ábyrgð nemandans sjálfs þar sem fjarkennslan getur minna sinnt honum. Mikilvægt er að nemandi lesi upphátt og endurtaki orð og setningar til að æfa sig og sinni vel talþætti kennslubókarinnar.
Nemendur nota grunnbækur, lesbók og vinnubók. Einnig lesa þeir stuttbók. Í kennslubókinni eru mjög margar hlustunaræfingar og einnig er þar myndefni, þar sem nemendur fá kynningu á landi og þjóð. Verkefni eru fjölbreytt og úr efni lesbókar, vinnubókar og stuttbókar.
Markmiðið er að nemandi skilji flóknari orðasambönd um sig og umhverfi sitt. Að nemandi geti sagt frá með einföldum orðaforða og skrifað stutta, einfalda texta.
Þekking: Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
Hæfni: Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Leikni: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Í lok áfangans er skriflegt og munnlegt próf úr efni áfangans sem gildir á móti vinnu og ástundun nemandans á önninni. Verkefnavinnan gildir aðeins til lokaeinkunnar ef lokapróf er 4,5 eða yfir. Athugið að ef engum verkefnum er skilað er vinnueinkunn 0. Þá getur lokapróf sem er 80% farið niður í 3.6 og er þá fall.