Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Upplýsingatækni og tölvunotkun Access, Word og Excel
Áfanginn er framhald af TÖLV 2RT 05 (eða sambærilegum áfanga). Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.
Áfanginn Tölv3UT05 er annar tveggja á viðskiptabraut. Unnið er með forrit sem tilheyra Office 365. Í áfanganum er lögð rík áhersla á að nemandi öðlist færni í notkun tölvunnar sem tækis og geti nýtt hana í frekara námi eða starfi. Einnig er lögð áhersla á að nemandi tileinki sér vandvirkni, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Tölv3UT05 skiptist í þrjá hluta:
Markmiðið er að nemendur nái að nýta sér til gagns í námi og starfi flókna möguleika ritvinnslunnar Word, fjármálaföll og Pivot-töflur í töflureikninum Excel og grunnaðgerðir í Access gagnagrunni. Í Word er lögð áhersla á m.a. að geta unnið að uppsetningu ritgerða og stórra skýrslna, geta nýtt blaðadálka, töflur, númeraðar töflur og töflulista, númeraðar myndir og myndalista, uppsetningu verslunarbréfa, formbréf, notkun sniðmáta og stíla og uppsetningu heimilda.
Unnið er nokkuð stórt verkefni með forsíðu í sama skjali, neðanmálsgreinum, töflum og myndritum með beinni tenginu við Excel, listum, myndatextum, láréttum síðum, efnisyfirliti, heimilda- og atriðaskrá.
Lögð er áhersla á að geta nýtt sér til hlýtar innbyggð föll í Excel, tölfræði- og fjármálaföllin og flóknari útreikninga. Einnig verður farið í Pivot-töflur (snúningstöflur).
Farið í gegnum grunnatriði í notkun gagnasafnsforritsins Access. Nemendur hanna og vinna með einfalda gagnagrunna, slá inn gögn, nota síur og fyrirspurnir, flytja inn gögn úr öðrum forritum og búa til skýrslur og form.
Lokaverkefnið gildir 70% á móti 30% fyrir skilaverkefnin. Í lokaverkefninu þarf að ná a.m.k. 4,0 í hverjum þætti fyrir sig (þ.e. í Word, Excel og Access) og að lágmarki 4,5 í heildina til að skilaverkefnin gildi og nemandi standist áfangann – og öfugt.
Lögð er áhersla á að nemendur vinni samviskusamlega sín verkefni.
Í kennslubókunum eru leiðbeiningar og verkefni við verkefni sem unnin verða í gegnum áfangann ásamt leiðbeiningum og verkefnum frá kennara. Kennslubækurnar fæst hjá kennara áfangans, Sólveigu, GSM 864-2873.
Kennslugækur áfangans