VÉLR1FI02
Vélritun, fingrasetning
Grunnáfangi. Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.
Vélritun 1FI 02 er ætlaður byrjendum í vélritun og inniheldur hann fjórar lotur, eða Verk001 til Verk022.
Í áfanganum er farið í allt hnappaborðið. Byrjað er á léttum fingraæfingum og æfingar þyngdar smátt og smátt. Í síðustu tveim verkefnunum í 4. lotu er farið sérstaklega í merki og tölur.
Hraðapróf (lotupróf og lokapróf) eru fimm mínútna próf sem tekin eru tvisvar sinnum og gildir hið betra. Einkunn sem gefin er fyrir hraðapróf fer eftir fjölda orða á mínútu að frádregnum villum.
Lotupróf eru tekin í lok hverrar lotu, til að meta stöðu nemanda.
Farið er línulega í gegnum áfangann, frá fyrsta verkefni að lokaprófi. Einnig eru í áfanganum leiðbeiningar og skýringar við þá þætti námsefnisins þar sem þörf er á. Þennan hluta námsefnisins eiga nemendur að lesa vel og fylgja þeim leiðbeiningum sem þar koma fram.
Í því augnamiði að stuðla að því að nemendur tileinki sér réttar vinnustellingar og vinnuferli, er leiðbeiningum skotið inn með reglulegu millibili í námsferlinu. Þar er leiðbeint um réttar vinnustellingar og hléæfingar sem gott er að gera til að koma í veg fyrir þreytu, bakverki og aðra óæskilega fylgikvilla við tölvuvinnu.
Haft var að leiðarljósi við textagerð:
- Að nemendur læri smátt og smátt á allt hnappaborðið og að æfingar séu einfaldar framan af en þyngist smátt og smátt.
- Að nemendur læri á allt hnappaborðið með því að vélrita á fleiri tungumálum en íslensku, svo sem ensku, þýsku, dönsku, spænsku, frönsku og latínu.
- Að æfingarnar innihaldi spakmæli og orðtök á fyrrnefndum tungumálum.
- Að nemendur æfi stafsetningu, bæði í íslenskum og erlendum tungumálum, um leið og þeir læra vélritun.
- Að æfingar séu jákvæðar og fræðandi.
- Að í námsefninu sé góð framvindustýring þar sem nemendur taka próf eftir hverja lotu og bæði nemendur og kennarar geti fylgst með framvindunni.
- Að nemendur læri rétta fingrasetningu.
- Að nemendur noti blindskrift.
- Að nemendur vélriti með jöfnum áslætti.
- Að nemendur nái lágmarkseinkunn 5 á lokaprófi.
- Lokapróf gildir 70% af lokaeinkunn.
- Verkefni gilda 30% af lokaeinkunn.