Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Fyrsti nemandinn sem útskrifast með verslunarpróf í fjarnámi
Í desember 2006 var fyrsti fjarnemandinn útskrifaður með verslunarpróf frá Verzlunarskóla Íslands. Þórhallur hóf nám hér haustið 2005 og lauk tilskildum áföngum til verslunarprófs á haustönn 2006.
Þórhallur sagði að það þyrfti að skipuleggja tíma sinn vel til að stunda fjarnám með fullri vinnu. Fjölskyldan hefði öll verið í skóla á þessum tíma og það hefði haft hvetjandi áhrif á börnin hans, sem eru á grunnskólaaldri, að sjá báða foreldra sína við nám.
Á myndinni er Sölvi Sveinsson skólastjóri að afhenda Þórhalli Vigfússyni prófskírteinið.