Námsgjöld
Námsgjöld gilda aðeins fyrir eina önn og þau eru ekki endurgreidd. Námsgjöld verður að greiða áður en nám hefst.
Fjarnámsgjöld eru samsett úr kennslugjaldi annars vegar og innritunargjaldi hins vegar.
Kennslugjald
Verð fyrir hverja námseiningu er 3.600 krónur. Athugið að námseining er aftasti stafurinn í númeri áfangans, t.d. er áfanginn DANS2MM05 fimm námseiningar. Hver fimm eininga áfangi kostar því 18.000 krónur.
Innritunargjald
Nemandi sem skráir sig í fjarnám, greiðir 7.200 krónur í innritunargjald, óháð einingafjölda. Nemendur sem eru í dagskóla VÍ greiða ekki innritunargjald.
Verðskrá
Einingar | Innritunargjald | Kennslugjald | Alls |
---|---|---|---|
1 | 7.200 | 3.600 | 10.800 |
2 | 7.200 | 7.200 | 14.400 |
3 | 7.200 | 10.800 | 18.000 |
4 | 7.200 | 14.400 | 21.600 |
5 | 7.200 | 18.000 | 25.200 |
6 | 7.200 | 21.600 | 28.800 |
7 | 7.200 | 25.200 | 32.400 |
8 | 7.200 | 28.800 | 36.000 |
9 | 7.200 | 32.400 | 39.600 |
10 | 7.200 | 36.000 | 43.200 |
11 | 7.200 | 39.600 | 46.800 |
12 | 7.200 | 43.200 | 50.400 |
13 | 7.200 | 46.800 | 54.000 |
14 | 7.200 | 50.400 | 57.600 |
15 | 7.200 | 54.000 | 61.200 |
16 | 7.200 | 57.600 | 64.800 |
17 | 7.200 | 61.200 | 68.400 |
18 | 7.200 | 64.800 | 72.000 |
19 | 7.200 | 68.400 | 75.600 |
20 | 7.200 | 72.000 | 79.200 |
Próftökugjald er ekkert ef próf er tekið í Verzlunarskólanum. Óski nemandi eftir því að taka prófið annars staðar, t.d. í sendiráði eða í menntastofnun á búsetusvæði sínu, gæti hann þurft að greiða próftökugjald á viðkomandi stað. Gjaldið er mismunandi og ákveðið af ábyrgðarmanni á próftökustað.
Frekari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á fjarnam@verslo.is .