20.05.2014 Aðkoma atvinnulífsins að starfsemi Verzlunarskólans breikkuð Á nýafstöðnum aðalfundi Verzlunarskóla Íslands tók ný skipulagsskrá skólans gildi. Með henni er aðkoma atvinnulífsins að starfsemi Versló breikkuð auk þess sem tengsl við fyrrverandi nemendur eru efld í gegnum þátttöku þeirra í nýju fulltrúaráði skólans. Undanfarin 90 ár hefur skólinn starfað undir vernd Viðskiptaráðs Íslands sem hefur jafnframt skipað skólanefnd og fulltrúaráð skólans. Skólinn hefur ávallt lagt ríka áherslu á framsækna stefnu og sterk tengsl við atvinnulífið. Til að efla þessa styrkleika skólans enn frekar ákvað stjórn Viðskiptaráðs Íslands að endurskoða skipulagsskrá skólans. Samhliða áðurnefndum breytingum á skipulagsskrá skólans tekur nýtt fulltrúaráð til starfa auk þess sem gerðar voru breytingar á skólanefnd. Í fulltrúaráðinu sitja níu einstaklingar og meginhlutverk þess er að marka stefnu skólans í samstarfi við skólanefnd og fylgja eftir framvindu hennar. Þrír meðlimir fulltrúaráðsins eru skipaðir af Viðskiptaráði, þrír af Samtökum atvinnulífsins. Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja og Samtök verslunar og þjónustu skipa einn fulltrúaráðsmann hvert. Með fjölbreyttari aðkomu atvinnulífsins verður skólinn enn betur í stakk búinn til að mæta ólíkum þörfum viðskiptalífsins og þeim breytingum sem framundan eru í menntamálum landsins. Ber þar helst að nefna fyrirhugaðar breytingar á framhaldsskólastigi í þriggja ára nám en áætlanir gera ráð fyrir að Verzlunarskólinn hefji innleiðingu þeirra haustið 2015. Fjárhagsleg staða skólans er sterk og eflir enn frekar grundvöll þess að Verzlunarskólinn verði áfram leiðandi afl framþróunar á framhaldsskólastigi. Í nýju fulltrúaráði skólans sitja eftirfarandi aðilar: Ásdís Kristjánsdóttir – tilnefnd af SA Benedikt Jóhannesson – tilnefndur af SAF Frosti Ólafsson – tilnefndur af VÍ Hannes Frímann Hrólfsson – tilnefndur af SFF Ingibjörg Gréta Gísladóttir – tilnefnd af VÍ Jón Diðrik Jónsson, tilnefndur af VÍ Margrét Flóvenz – tilnefnd af SVÞ Steinn Logi Björnsson – tilnefndur af SA Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir – tilnefnd af SA Í skólanefnd Verzlunarskólans sitja eftirfarandi aðilar: Andri Þór Guðmundsson Bryndís Hrafnkelsdóttir, formaður Hannes Frímann Hrólfsson Helgi Jóhannesson varaformaður Sigríður Margrét Oddsdóttir