18.12.2019 Birting einkunna og prófsýning Lokaeinkunnir haustannar verða aðgengilegar í INNU klukkan 20.00 fimmtudaginn 19. desember. Á sama tíma verða bókalistar og stundatöflur næstu annar aðgengilegar. Foreldrum/forráðamönnum er bent á að fara á INNU og skoða námsferil barna sinna. Nemendur sem eru orðnir 18 ára geta opnað fyrir foreldraaðgang hjá sér í Innu. Prófsýning fer fram föstudaginn 20. desember milli 8:30 og 10:00. Nemendur sem falla í áfanga eru sérstaklega hvattir til að mæta og skoða prófúrlausnir sínar því skrifstofa skólans lokar klukkan 15:00 þennan sama dag og opnar ekki aftur fyrr en mánudaginn 6. janúar. Athugið að vegna persónuverndarsjónarmiða geta nemendur einungis séð eigin úrlausnir og tekið af þeim myndir. Ekki er leyfilegt að samnemandi taki myndir af prófúrlausnum bekkjarsystkina. Komist nemandi ekki á prófsýningu geta foreldrar komið fyrir hönd barna sinna ef þau eru yngri en 18 ára. Nemendur sem ekki komast á prófsýningu og eru með fall í lokaprófi og á leið í endurtekt, geta sent tölvupóst á kennara sinn daginn sem einkunnir eru birtar og óskað eftir að fá prófúrlausn sína senda til sín í tölvupósti. Athugið að þetta á einungis við um nemendur sem falla í áfanga og þurfa að endurtaka hann. Nemendur sem ekki komast á prófsýningu um jól geta óskað þess í janúar að sjá prófúrlausnir sínar hjá viðkomandi kennara eða á skrifstofu skólans.