15.05.2024 Birting einkunna og prófsýning Lokaeinkunnir vorannar verða aðgengilegar í INNU klukkan 20.00 fimmtudaginn 16. maí. Foreldrum/forráðamönnum er bent á að fara á INNU og skoða námsferil barna sinna. Nemendur sem eru orðnir 18 ára geta opnað fyrir foreldraaðgang hjá sér í Innu. Prófsýning fer fram föstudaginn 17. maí milli 8:30 og 9:45. Athugið að vegna persónuverndarsjónarmiða geta nemendur einungis séð eigin úrlausnir og tekið af þeim myndir. Ekki er leyfilegt að samnemandi taki myndir af prófúrlausnum bekkjarsystkina. Komist nemandi ekki á prófsýningu geta foreldrar komið fyrir hönd barna sinna ef þau eru yngri en 18 ára. Nemendur sem ekki komast á prófsýningu og eru með fall í lokaprófi og á leið í endurtekt, geta sent tölvupóst á kennara sinn daginn sem einkunnir eru birtar og óskað eftir að fá prófúrlausn sína senda til sín í tölvupósti. Athugið að þetta á einungis við um nemendur sem falla í áfanga og þurfa að endurtaka hann.