12.10.2012 Bleikur föstudagur í Verzlunarskólanum Eins og flestir vita er október mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Að því tilefni voru landsmenn hvattir til að klæðast einhverju bleiku föstudaginn 12. október og lét Verzlunarskólinn ekki sitt eftir liggja í þeim efnum og mættu margir nemendur og kennarar í einhverju bleiku til að stunda nám sitt og vinnu. Gangarnir í Verzló voru því nokkuð bleikir þennan daginn, mörgum til mikillar ánægju. Bleik kennarastofa (smellið á myndina til að stækka hana)