Brautskráning 2024 – myndir

Brautskráning stúdenta frá Verzlunarskólanum fór fram laugardaginn 25. maí við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu.

Að þessu sinni brautskráðust 330 nýstúdentar frá Verzlunarskólanum.

Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri, flutti nemendum kveðjuorð sín þar sem hún hvatti nemendur til að vera óhrædda við að prófa nýjar leiðir þar sem þeirra kynslóð stæði frammi fyrir miklum áskorunum hvort sem horft væri til heimsmála eða tækniþróunar. Hún lagði einnig áherslu á hversu mikilvægt það væri að halda tengslum og rækta vináttuna sem myndast hefur í Verzló.  Að tilheyra hópi, árgangi sem útskrifast saman, er dýrmætt.

Að vanda var úthlutað úr VÍ 100 sjóðnum en hann var stofnaður í tilefni af 100 ára afmæli skólans. Fyrrverandi nemendur skólans lögðu fé í sjóðinn og í skipulagsskrá fyrir sjóðinn segir m.a. að árlega skuli hann styrkja valda nemendur með fjárframlagi, þegar þeir flytjast milli bekkja eða ljúka stúdentsprófi. Skal við það miðað að styrkþegar hafi sýnt afburða námsárangur eða lagt verulega af mörkum til skólastarfsins á annan hátt.

Dúx skólans var Ragna María Sverrisdóttir í 3-X, með I. ágætiseinkunn; 10,0. Hlaut hún bókagjöf og námsstyrk.

Semidúxinn var Nói Pétur Á. Guðnason í 3-D, með I. ágætiseinkunn; 9,9 og hlaut hann bókagjöf og námsstyrk.

Nemendur með 9,5 og hærra fengu einnig bókagjafir og námsstyrk og voru það eftirfarandi nemendur:

Nafn Einkunn
Róbert Dennis Solomon 3-H 9,8
Selma Sól Sigurjónsdóttir 3-G 9,7
Salka Heiður Högnadóttir 3-Y 9,7
Kolbrún Hilda Gunnarsdóttir 3-Y 9,6
Mikael Bjarki Ómarsson 3-X 9,5
Bjartþór Steinn Alexandersson 3-X 9,5

Jafnframt voru veitt verðlaun fyrir bestan námsárangur að loknu  1. og 2. ári og voru það eftirfarandi nemendur:

Vilhjálmur Geir Geirsson 1-Y, einkunn 9,9

Vala Katrín Guðmundsdóttir 2-S, 9,7

Inga Júlíana Jónsdóttir 2-U, 9,7

Skólinn óskar öllum brautskráðum nemendum skólans innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni.

Aðrar fréttir