Brautskráning Norður-Atlantshafsbekkjarins

Annar árgangur Norður-Atlantshafsbekkjarins lauk lokaári sínu í Sisimiut á Grænlandi með brautskráningu, þriðjudaginn 27. júní. Fjórir íslenskir nemendur voru meðal útskriftarnemenda; Elsa Lilly Hafþórsdóttir, Lív Höskuldsdóttir, Sandra Karen Daðadóttir og Thelma Dögg Hafliðadóttir. Þær stóðu sig með miklum ágætum og hafa verið verðugir fulltrúar Íslands í þessu einstaka samvinnuverkefni fjögurra skóla í jafnmörgum löndum. Við óskum þeim og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju.

Með þessari útskrift hefur annar hópurinn klárað þá ævintýralegu vegferð sem námið í Norður – Atlantshafsbekknum er. 15 nemendur voru í bekknum sem var að útskrifast en þau dvöldu fyrsta árið sitt í Gribskov í Danmörku. Annað námsárið skiptist í tvennt, annars vegar haustönn í Færeyjum og hins vegar í Verzló á vorönn. Lokanámsárið er svo á Grænlandi. Önnin í Verzló var sérlega ánægjuleg og gaman að hafa þennan merkilega nemendahóp hjá okkur og kynnast þeim vel.

Nemendur bekkjarins eru einstaklega samheldin hópur og hafa tekið út mikinn þroska á vegferð sinni. Námið gekk mjög vel hjá þeim og það voru stoltir nemendur sem tóku við skírteinum sínum við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu í Sisimiut.

Einn NGK bekkur er á hverju námsári og munu því íslenskir NGK nemendur vera við nám í Danmörku, Færeyjum og Grænlandi núna í haust. Hægt er að lesa meira um NGK-bekkinn hér .

Aðrar fréttir