Dönskukennari

Verzlunarskóli Íslands auglýsir eftir dönskukennara í afleysingu á vorönn 2025.

Um er að ræða 50% stöðu.
Hæfnikröfur:
• Háskólapróf í dönsku.
• Kennsluréttindi.
• Reynsla af kennslu í framhaldsskóla er kostur.
Við bjóðum:
• Góða vinnuaðstöðu.
• Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen skólastjóri.
Umsóknarfrestur er til 27. október og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið
gunninga@verslo.is

Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með 1070 nemendur. Skólinn er bekkjaskóli. Nemendur geta valið á milli fjögurra mismunandi brauta og útskrifast með stúdentspróf. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm
fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið.

Aðrar fréttir