Fánadagur heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna

Verzlunarskóli Íslands tekur þátt í fánadegi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna þar sem fána þeirra verður flaggað í dag, mánudaginn 25. september.

Tilgangur fánadagsins er að minna á mikilvægi heimsmarkmiðanna og að sýna stuðning í verki.

Þann 25. september 2023 eru átta ár liðin frá því að heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun voru samþykkt. Heimsmarkmiðin fela í sér ákall eftir alþjóðlegu samstarfi um að efla velferð og gera heiminn að betri stað fyrir árið 2030. Þótt athyglisverður árangur hafi náðst á ýmsum sviðum þá erum við þegar hálfnuð á vegferðinni til 2030 og ljóst að aukinn slagkraft þarf í aðgerðir til að ná þeim árangri sem að var stefnt.

Aðrar fréttir