Glæsilegt nýnemaball í Kórnum

Fimmtudaginn 19. september var haldið  nýnemaball  í Kórnum.

Ballið var skipulagt af stjórn NFVÍ.  Alls mættu rúmlega 900 nemendur, þar af voru 522 sem blésu í áfengismæli og settu þar með nafn sitt í edrúpott.

Foreldrafélagið veitti eftirfarandi verðlaun:

  • Þrír Iphone 16 símar
  • Gjafakort í Kringluna
  • Pizzaveisla fyrir þá bekki þar sem flestir blésu í áfengismæli

Auk þess að gefa þessa glæsilegu verðlaun stóðu fulltrúar frá foreldrafélaginu vaktina fyrir utan ballstaðinn og er óhætt að segja að vel hafi verið tekið á móti nemendum með teppi og heitum drykk  þegar þeir mættu prúðbúnir en ekki endilega vel búnir.

Vinningshafar símanna voru:

  • Aldís María Smáradóttir, 1.E
  • Hrafnhildur Eva Davíðsdóttir, 2.T
  • Heiða María Magnússon, 3.X

Ennfremur voru gjafabréf í Matbúð í verðlaun.

Óskum við vinningshöfum til hamingju.

Ballið var vel sótt og nemendur nutu þess sannarlega að hittast og eiga góða stund saman.

Aðrar fréttir