24.03.2025 Hefur þú týnt einhverju? Síða með myndum af óskilamunum er komin í loftið. Á síðunni birtum við myndir af óskilamunum sem hafa fundist í skólanum og á skólaviðburðum. Hægt er að vitja óskilamuna hjá Eiríki, umsjónarmanni fasteigna. Vörslutími óskilamuna er þrír mánuðir. Að þeim tíma liðnum er fatnaður gefinn til Rauða krossins, en öðrum óskilamunum er fargað á viðeigandi hátt. Viðkomandi þarf að sanna eignarhald sitt á þeim hlut sem er sóttur. Við hvetjum alla til að fylgjast reglulega með síðunni og muna að merkja eigur sínar vel. Óskilamunir