Jarðfræðiferð

Jarðfræðiferð um Heiðmörk og Elliðaárdal var farin í síðustu viku þar sem nemendur kynntu sér jarðfræðina í nágrenni Reykjavíkur og skoðuðu stóru misgengin í Heiðmörk sem eru samskonar sprungur og er að finna í Grindavík og tengjast fráreksbelti sem liggur í gegnum landið. Nemendum fannst tilkomumikið að horfa ofan í hyldjúpa Vatnsgjá og finna fyrir þeim kröftum sem móta landið okkar.

Myndirnar eru teknar í Elliðaárdal, Búfellgjá, Búrfellsgíg og Valabóli.

Aðrar fréttir