02.09.2015 Málfundur um innritun og einkunnaverðbólgu Miðvikudaginn 2. september mun fara fram málfundur um inntöku nýnema í menntaskóla og þá einkunnaverðbólgu sem virðist hafa aukist síðastliðin ár. Mikil umræða var um málið í sumar og munu fulltrúar frá ýmsum stigum menntakerfisins mæta og ræða hvað úrræði eru við þessu vandamáli. Á fundinum verða: Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands Þorkell Diego, yfirkennari við Verzlunarskóla Íslands Lárus H. Bjarnason, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð Bjarni Gunnarsson, konrektor Menntaskólans í Reykjavík Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar Kristrún Birgisdóttir, fulltrúi Menntamálaráðuneytis Jón Pétur Zimsen, skólastjóri Réttarholtsskóla Aron Ólafsson, formaður stúdentaráðs HÍ Fundarstjóri verður Kjartan Þórisson. ATH: enn gætu einhverjir bæst við. Fundurinn fer fram í Bláa sal Verzlunarskóla Íslands kl. 20:00 og eru allir velkomnir – opið verður fyrir spurningar á fundinum og vonumst við til að sjá sem flesta.