18.05.2015 Nemendur í frumkvöðlafræði gáfu hálfa milljón Nemendurnir, Andrea Björnsdóttir, Arnór Rafn Gíslason, Goði Már Daðason, Gunnar Bjarki Björnsson, Helga Sigríður Magnúsdóttir og Hjalti Steinar Sigurbjörnsson stofnuðu fyrirtækið Mystma í frumkvöðlafræði í vor. Þau hönnuðu nælur til styrktar Krabbameinsfélaginu og skilaði verkefnið tæpri hálfri milljón eða 470.000 kr. Hér má sjá frétt sem birtist á Mbl.is um fyrirtækið: Frumkvöðlar gáfu hálfa milljón