04.11.2024 Nemendur úr 3-B sóttu messu í tengslum við heimspekiáfanga Sunnudaginn 3. nóvember sótti hress hópur nemenda úr 3-B ásamt kennara sínum, Ármanni Halldórssyni, messu í Grensáskirkju hjá séra Þorvaldi Víðissyni. Tilefnið var að kynna sér starf kirkjunnar í tengslum við námsefni um trúmál í heimpeki. Að messu lokinni átti hópurinn innihaldsríkt spjall við séra Þorvald, þar sem ýmis atriði úr messuformi og trúariðkun voru rædd. Farið var yfir hvernig sálmar og ritningartextar í messum tengjast árstíma, þátttöku safnaðarmeðlima í messuhaldi, tónleikahald í kirkjum og margt fleira. Ármann var leystur út með bókargjöf, sem mun nýtast vel í kennslu á þessu sviði í framtíðinni. Hópurinn kvaddi kirkjuna með gott vegarnesti til íhugunar og heimspekilegrar úrvinnslu.