Nemendur Verzlunarskólans læra um sjálfbæra þróun á Spáni

Dagana 24. – 28. mars fóru fimm nemendur á 2. ári viðskiptabrautar ásamt tveimur starfsmönnum í námsferð til Spánar.

Nemendurnir dvöldu á heimilum jafnaldra sinna á Spáni og fengu einstakt tækifæri til að upplifa daglegt líf og menningu þeirra.

Námsferðin var hluti af Erasmus+ samstarfsverkefni milli Íslands, Spánar, Frakklands og Vínar. Meginmarkmið verkefnisins er að fræða nemendur um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og hvetja þá til að tengja þessi markmið við sitt eigið daglega líf.

Nemendurnir fylgdu þéttri og fjölbreyttri dagskrá sem skipulögð var af skólanum á Spáni. Á dagskránni voru m.a. heimsóknir í stofnanir og fyrirtæki sem leggja sérstaka áherslu á sjálfbærni. Farin var dagsferð til Barcelona og helstu kennileiti borgarinnar skoðuð.

Ferðin var afar vel heppnuð og gaf nemendum dýrmæta innsýn í það hvernig sjálfbær þróun getur haft áhrif á samfélög.

Aðrar fréttir