12.03.2012 Norræn goðafræði áberandi í skólanum Goð, gyðjur og hetjur norrænnar goðafræði hafa verið nemendum hugleiknar undanfarnar vikur. Þriðjubekkingar hafa farið á kostum við að túlka þessar verur á myndrænan hátt í íslenskutímum og Viljinn gerir þeim góð skil í smekklegum ljósmyndaþætti í nýjasta tölublaði sínu. Fremstar meðal jafningja eru þó þær Aþena, Berglind og Ingibjörg í 3-R en þær eiga heiðurinn að mannhæðarstóru „líkneski“ af Óðni sem nú þrumir yfir stofu 406 á 4. hæð. Ríkir þar sannkölluð Eddustemmning: Mjög er auðkennt, þeim er til Óðins koma salkynni að sjá: vargur hangir fyr vestan dyr og drúpir örn yfir. (Úr Grímnismálum). Aþena, Berglind, Ingibjörg og Óðinn