27.11.2012 Ólöf Kristín sigraði í Vælinu Vælið, söngkeppni Verzlunarskóla Íslands, fór fram föstudaginn 23. nóvember sl. í Hörpunni. Óhætt er að fullyrða að keppnin hafi verið glæsileg og tekist vel í alla staði. Auk 13 söngatriða voru fjölmörg dans- og skemmtiatriði. Sigurvegari kvöldsins var Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir, 6–T, og voru flestir sammála um það að hún hafi verðskuldað sigurinn í góðri keppni. Helena Sævarsdóttir í ljósmyndanefnd tók glæsilegar myndir á keppninni og birtust þær á heimasíðu visi.is. Myndirnar má nálgast hér. Hérna er hægt að nálgast viðtal við Ólöfu eftir keppnina. Ólöf syngur lagið Feeling Good (mynd: visir.is)