25.03.2015 Páskabingó 26. mars Fimmtudaginn 26. mars kl. 20:00 mun 6. bekkjarráð standa fyrir páskabingói sem haldið verður í bláa sal Verzlunarskólans. Eitt bingóspjald kostar 400 kr. Tvö bingóspjöld kosta 700 kr. Þrjú bingóspjöld kosta 1000 kr. Allur ágóði rennur í söfnunarsjóð útskriftanema en leið þeirra liggur í útskriftarferð til Marmaris á Tyrklandi í maí. Veglegir vinningar eru í boði og má þar helst nefna fjórhjólaferð fyrir tvo frá Eskimo Travel, silfurpakka frá Formal stúdentshúfum, gjafakort á veitingastaði og páskaegg nr. 10. Vonumst til að sjá sem flesta.