27.04.2022 Peysufatadagur Þriðjudaginn 3. maí er peysufatadagur 2. árs nema. Dagurinn hefst á dagskrá í skólanum en síðan fara nemendur í rútum að Hallgrímskirkju og þaðan ganga þau niður á Ingólfstorg þar sem dansað verður. Gert er ráð fyrir þeim hjá Hallgrímskirkju klukkan 12:00 og áætlað er að dansinn verði stiginn á Ingólfstorgi klukkan 12:20. Snæddur verður hádegisverður í Gullhömrum og dagskránni lýkur með balli um kvöldið. Við hvetjum forráðamenn til að gera sér ferð á Ingólfstorg og fylgjast með þeim þegar þau stíga dansinn á Ingólfstorgi. 9:00 Mæting upp í Versló 9:30 Dagskrá hefst 12:00 Gengið frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg 12:20 Dansað á Ingólfstorgi 13:00 Myndataka við H.Í. 14:00 Matur í Gullhömrum