15.12.2020 Prófsýning Einkunnir birtast í INNU fimmtudaginn 17. desember klukkan 20:00. Prófsýning verður rafræn að þessu sinni. Nemendur, sem óska eftir að sjá úrlausnir sínar í öðrum prófum en tekin voru í INNU, geta sent póst á kennara sína milli 8:30 og 10:00, föstudaginn 18. desember. Þeim póstum sem berast á réttum tíma verður svarað samdægurs en öðrum póstum munu kennarar svara við hentugleika. Endurtektarpróf fara fram 4., 5. og 6. janúar.