17.12.2024 Sjúkrapróf, birting einkunna og fleira Sjúkrapróf Sjúkrapróf fyrir 2. og 3. ár fara fram miðvikudaginn 18. desember klukkan 11:00. Birting einkunna Opnað verður fyrir námsmat nemenda í INNU fimmtudaginn 19. desember klukkan 20:00. Prófsýning Prófsýning verður haldin í skólanum föstudaginn 20. desember frá klukkan 8:30 til 9:45. Nemendur geta þá komið og hitt kennara sína og skoðað lokapróf og annað námsmat úr áföngum annarinnar. Prófsýning fjarnáms er á sama tíma. Þeir nemendur sem þurfa að endurtaka áfanga eru sérstaklega hvattir til að koma og taka mynd af prófúrlausn sinni. Ef nemandi sem fellur á lokaprófi kemst ekki á prófsýningu getur hann haft samband við sinn kennara fyrir prófsýningardaginn og óskað eftir að fá afrit af lokaprófi sent í tölvupósti. Endurtektarpróf Þeir nemendur sem ekki ná tilskildum árangri í einstaka greinum eru sjálfkrafa skráðir í endurtektarpróf í janúar. Við minnum á skólareglur varðandi námsframvindu en þar segir að nemandi hafi þrjú tækifæri til að ljúka áfanga, endurtektarpróf í janúar er tækifæri númer 2, hvort sem nemandinn nýtir endurtökuréttinn eða ekki. Þeir sem ekki ná að ljúka áfanga í endurtöku þurfa að skrá sig í fjarnám skólans í viðkomandi áfanga og taka hann samhliða dagskólanum á vorönn. Endurtektarpróf fara fram 3., 6. og 7. janúar. Próftafla endurtektarprófa verður birt á heimasíðu skólans 20. desember.