Skólabyrjun og bóksala

Skólasetning Verzlunarskóla Íslands hefst með athöfnin sem er einungis ætluð nýnemum og hefst hún klukkan 10:00 föstudaginn 17. ágúst í hátíðarsal skólans (Bláa sal).

Vegna mikillar aðsóknar er mikilvægt að nýnemar mæti, að öðrum kosti geta þeir átt á hættu að verða af skólavist. Nýnemar fá sérstaka kynningu á skólanum sem varir til klukkan 15:00.

Eldri bekkingar mæta skv. stundaskrá mánudaginn 20. ágúst. Stundaskrár og bekkjarlistar verða aðgengilegir í INNU á föstudaginn.

Allir nemendur er hvattir til þess að ganga sem fyrst frá kaupum á námsbókum. Sala á bókum og heftum sem ekki eru seld í bókabúðum fer fram í stofu 103 á 1. hæð.

Bókalistann fyrir veturinn má finna undir flipanum „Námið“ en einnig er flýtivísun hér.

Bóksalan verður opin á eftirfarandi tímum: 

Föstudagur 17. ágúst  13:00 – 16:00
Mánudagur 20. ágúst  08:00 – 15:00

Aðrar fréttir