13.08.2009 Skólasetning 19. ágúst 2009 Verzlunarskóli Íslands verður settur miðvikudaginn 19. ágúst klukkan 10:00. Athöfnin fer fram í hátíðarsal skólans (Bláa sal) og er ætlast til þess að allir nemendur mæti tímanlega. Vegna mikillar aðsóknar er afar mikilvægt að nýnemar mæti, að öðrum kosti geta þeir átt á hættu að verða af skólavist.