14.11.2024 Spænskukennari Verzlunarskóli Íslands auglýsir eftir spænskukennara í afleysingu á vorönn 2025. Um er að ræða 100% stöðu. Hæfnikröfur: • Háskólapróf í spænsku. • Kennsluréttindi. • Reynsla af kennslu í framhaldsskóla er kostur. Við bjóðum: • Góða vinnuaðstöðu. • Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Inga Sívertsen skólastjóri. Umsóknarfrestur er til 18. nóvember. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á netfangið: gunninga@verslo.is