20.06.2013 Sumarlokun Skrifstofur skólans verða lokaðar frá föstudeginum 21. júní til kl. 8:00 miðvikudaginn 7. ágúst. Sumarönn fjarnáms er í gangi og hægt er að hafa samband við fjarnámsstjóra með því að senda póst á fjarnam@verslo.is. Hægt er að sækja um fjarnám á sumarönn til 1. júlí. Fjarnámspróf hefjast 6. ágúst. Sjá nánar próftöflu fjarnáms. Skólinn verður settur 21. ágúst kl. 10:00 í hátíðarsal skólans.