Sumarlokun

Nú líður senn að sumarlokun skrifstofu Verzlunarskólans.

Endurtektarprófum er lokið og nemendur hafa fengið einkunn birta á INNU.

Þeir nemendur sem ekki náðu markmiðum sínum í endurtektarprófunum eða gátu ekki þreytt endurtektarpróf hafa tækifæri til að ljúka áföngum vetrarins í fjarnámi skólans í sumar en sumarönn er þegar hafin.

Á vefsíðu skólans er hægt að nálgast próftöflu sumarannar.

Þá viljum við benda á að Verzlunarskólinn er bekkjarskóli og nemendur fylgjast að í námi við skólann. Því er ekki heimilt að nemendur taki einstaka áfanga í fjarnámi á sumrin sem eru skilgreindir á braut viðkomandi nemanda til að fækka áföngum á komandi skólaári.

Við minnum einnig á 5. kafla í skólareglum skólans hvað varðar námsmat og þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að færast upp á næsta ár.

Kennsla haustannar hefst þriðjudaginn 20. ágúst samkvæmt stundatöflu. Nýnemar koma í skólann mánudaginn 19. ágúst og fá kynningu á skólanum. Skóladagatal næsta skólaárs er aðgengilegt hér á síðunni.

Við biðjum forráðamenn að skipuleggja frí barna sinna þannig að það hafi ekki áhrif á mætingu þeirra í skólann.

Stundatöflur verða aðgengilegar á INNU í byrjun ágúst.

Lokað hefur verið fyrir umsóknir nýnema í Versló á haustönn 2024. Hægt er að fylgjast með stöðu umsóknar á menntagáttinni, www.menntagatt.is. Allir nýnemar fá að vita niðurstöðu innritunar á sama tíma, þ.e. seinnipart júní. Ef einhverjar spurningar vakna má senda póst á verslo@verslo.is.

Greiðsluseðlar vegna skólagjalda verða sendir út í lok júní. Ef nemendur sem eru að færast á milli ára fá ekki greiðsluseðla getur það verið vegna ólokinna áfanga sem þarf að ljúka til að fara upp á næsta ár.

Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 17. júní og opnar aftur 7. ágúst.

Erindum til skólans utan opnunartíma skrifstofu er best að beina á netfang skólans, verslo@verslo.is, sem vaktað er í sumar.

Starfsfólk skólans óskar nemendum skólans og forráðamönnum þeirra gleðilegs sumars.

Aðrar fréttir