18.09.2023 Þróunarverkefni á 1. ári Nú stendur yfir þróunarverkefni hjá nemendum á fyrsta ári. Nemendur vinna með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og er yfirskrift verkefnisins samvinna og sjálfræði. Unnið er í teymum og fá nemendur tækifæri til að virkja sköpunarkraftinn því þeir stýra því sjálfir í hvaða átt þeir fara með verkefnið og hvers konar umbótum þeir hrinda í framkvæmd í samfélaginu. Gaman er að fylgjast með hugmyndaríkum nýnemum kljást við þessa áskorun.