06.09.2013 Upplýsingar vegna ferðar nýnema til Stokkseyrar Þegar komið er í skólann fara nemendur með allan farangur inn í Bláa sal og geyma hann þar. Salurinn verður læstur á meðan þið eruð í tímum. Munið að merkja allt vel. Þegar vígslan er búin á Marmaranum á að sækja farangurinn en skilja skóladótið eftir og við læsum salnum. Munið síðan að taka skólatöskurnar með heim á laugardaginn og þá engin afsökun fyrir að læra ekki heima fyrir mánudaginn. Gert er ráð fyrir að koma í bæinn aftur um klukkan 13:30 á laugardaginn. Rúturnar sem verða hjá Borgarleikhúsinu, merktar eftir bekkjum. Það sem taka þarf með í ferðina: · Dýna · Sæng/svefnpoki · Útiföt · Nesti ( fáið kvöldverð og morgunverð en gott er að hafa eitthvað með sér sem millimál) · Sundföt fyrir þá sem vilja fara í sund · Góða skapið Við hlökkum til að sjá ykkur. Kær kveðja, Skemmtinefnd Verzló