01.05.2022 Uppskeruhátíð Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla Uppskeruhátíð Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla var haldin í höfuðstöðvum Arion banka á föstudaginn síðastliðinn. Í fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla stofna nemendur og reka eigið fyrirtæki auk þess að vinna að viðskiptahugmynd sem miðar að því að efla skilning þeirra á fyrirtækjarekstri. Eftirfarandi fyrirtæki frá Verzlunarskóla Íslands hlutu verðlaun: Fyrirtæki ársins, 2. Sæti: DOZE Fyrirtæki ársins, 3. Sæti: Pósters Mesta nýsköpunin: Zomnium Besti Sjó-Bissnessinn: Lóna Besta tæknilausnin: Flutningstorg Umhverfisvænasta lausnin: Rás Besta „deililausnin“: Fataport Fallegasti sölubásinn: Esja skart Við erum mjög stolt af nemendum okkar og óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.