26.03.2012 Versló úr leik í Gettu betur Verzlunarskólinn tapaði á föstudaginn var gegn MR í undanúrslitum Gettu betur. Leikar fóru 24-17 MR-ingum í vil og því ljóst að Verzlunarskólinn mun ekki eiga lið í úrslitum þetta árið. Þrátt fyrir það stóð liðið sig vel í keppninni og er vert að óska þeim Agli, Gísla og Jakobi til hamingju með vasklega framgöngu.